Persónuvernd hjá Fizzy
Síðast uppfært: 27. október 2026
Fizzy er íslenskur hard seltzer frá JDE ehf. Hér er stutt yfirlit yfir hvaða upplýsingar verða til þegar þú heimsækir fizzy.is, hvað við gerum við þær og hvaða rétt þú átt.
Hver við erum
JDE ehf., kt. 580226-1910, Eyjarslóð 5, 101 Reykjavík. Netfang: fizzy@fizzy.is.
Hvað við vitum um þig
Við biðjum aldrei um nafn, netfang eða símanúmer á vefnum. Ef þú samþykkir vafrakökur sjáum við:
- hvaða síður þú skoðar
- hvort þú smellir yfir í verslun, og þá hverja
- hvernig tæki og vafra þú notar, og gróflega hvar þú ert
- hvort þú komst til okkar í gegnum auglýsingu
Ef þú hafnar vafrakökum sjáum við ekkert af þessu.
Af hverju
Til að gera vefinn betri og til að vita hvort auglýsingarnar okkar virka. Við seljum aldrei upplýsingar og notum þær ekki í neitt annað.
Vafrakökur
| Þjónusta | Fyrirtæki | Hlutverk |
|---|---|---|
| Google Analytics | Google Ireland Ltd. | Telur heimsóknir og smelli |
| Meta Pixel | Meta Platforms Ireland Ltd. | Mælir árangur auglýsinga á Facebook og Instagram |
Hvorug fer í gang nema þú samþykkir. Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er undir Vafrakökur.
Google og Meta geta geymt gögn í Bandaríkjunum. Bæði fyrirtækin eru skráð í samkomulag ESB og Bandaríkjanna um persónuvernd (EU-US Data Privacy Framework).
Hversu lengi
Google Analytics geymir gögnin í 14 mánuði. Meta fer eftir eigin skilmálum.
Instagram og Facebook
Ef þú skrifar athugasemd eða sendir okkur skilaboð sjáum við það, svo við getum svarað. Þar gilda líka skilmálar Meta.
Aldur
Fizzy er áfengur drykkur. Vefurinn er fyrir 20 ára og eldri.
Þinn réttur
Þú getur beðið um að sjá upplýsingarnar sem við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða láta eyða þeim, og dregið samþykki til baka hvenær sem er. Sendu okkur línu á fizzy@fizzy.is. Þú getur líka leitað til Persónuverndar á personuvernd.is.
Að eyða gögnum
Viltu að við eyðum einhverju um þig, til dæmis athugasemd á síðunum okkar? Sendu línu á fizzy@fizzy.is og við klárum það innan 30 daga.
Breytingar
Ef stefnan breytist uppfærum við dagsetninguna efst.